Í 60 ár höfum við verið þátttakendur í eldhúsverkunum – og vitum því hvað skiptir máli.

Við höfum fylgst með því hvernig fólk lifir, safnast saman og skapar minningar – með eldhúsið sem hjarta heimilisins. Frá annasömum morgnum til kyrrlátra kvölda, frá hlátri og góðum samræðum til drauma og daglegra venja. Þessar stundir móta hvernig við hönnum eldhús í dag.

Því að lokum snýst þetta ekki um eldhúsið sjálft, heldur fólkið sem lifir í því.

Þegar við fögnum þessum áfanga horfum við ekki aðeins til baka, heldur nýtum allt sem við höfum lært til að halda áfram. Með áratuga reynslu, vönduðu handverki og djúpum skilningi hönnum við eldhús sem falla að raunverulegu lífi.

Veldu borðplötu með nútímalegu yfirbragði
Veldu borðplötu með nútímalegu yfirbragði
Framhliðar með klassískum viðarkanti, innblásnar af 60 ára hönnunararfi.
Allir hlutir eiga sinn stað. Við bjóðum upp á ýmsar skúffulausnir fyrir eldhúsið.

Innblástur frá 60 ára hönnunarsögu

Afmæliseldhúsið er innblásið af 6. áratugnum – með áherslu á smáatriði og klassísk gæði. Hlýir viðar tónar, rólegir litir og tímalaust yfirbragð skapa jafnvægi milli fortíðar og nútíðar.

Niðurstaðan er eldhús sem er bæði praktískt, stílhreint og nútímalegt – hannað fyrir lífið eins og það er lifað í dag.